23.6.2010 11:54
Volare konur á ferð um Vestfirði


Deildarstjórar Volare, þær Lilja Dóra Hjörleifsdóttir og Eydís Björk Davíðsdóttir lögðu af stað í nokkurra daga kynningarferð á Vestfirði í gær.   Þær eru nú staddar á Flateyri og ætla á morgun, fimmtudag að vera með konukvöld í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.  Söluráðgjafar Volare á Vestfjörðum verða þeim til halds og trausts og má búast við góðri stemmningu þar, enda Vestfirðingar góðir heim að sækja. Konukvöldið byrjar kl. 20.00.  Á föstudaginn er stefnan svo sett á Tálknafjörð.  Vonast þær til að sjá sem flestar Vestfirskar konur á svæðinu.


Til baka